Almenn skrif
Hæstu launin, dýrasta landið
„Við erum í meistaradeild. Evrópusambandið í núverandi formi er í besta falli að keppa um miðja aðra deild,“ sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, forsvarsmaður Áfram Íslands, við stofnun samtakanna. Greinandi samtakanna lét ekki þar við sitja. Þegar ég benti á augljósa annmarka á greiningunni sem þessi fullyrðing hvílir á var svarið að ganga lengra: kaupmáttur launa á Íslandi væri ekki aðeins sá hæsti í Evrópu heldur sá hæsti í öllu OECD, samtökum þróaðra ríkja heims. Talan að baki þeirri fullyrðingu reyndist röng, eins og ég rek í rannsókn minni þar sem skjalfest eru þrjátíu dæmi um villandi framsetningu í greiningu samtakanna.
Á dögunum bættist svo nýtt innlegg í þessa keppni: forsíða Morgunblaðsins. Þar var sagt frá nýjum samanburði Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, undir fyrirsögninni að laun á Íslandi væru ein þau hæstu í Evrópu. Og hér er rétt að staldra við, því talan sjálf er rétt. Fyrirtæki greiða meira fyrir eina unna klukkustund á Íslandi en fyrirtæki í nokkru ríki Evrópusambandsins: 59,3 evrur á klukkustund, laun og launatengd gjöld, á móti 56,8 evrum í Lúxemborg, 51,7 í Danmörku og 34,9 að meðaltali í sambandinu. Íslensk vinnustund kostar með öðrum orðum 70 prósentum meira en meðalvinnustund í ESB. Það er raunverulegur árangur, og honum þarf ekki að lýsa með ýkjum.
En laun eru ekki markmið í sjálfu sér. Þau eru til þess að kaupa fyrir þau. Og þá vandast málið, því verðlag á Íslandi er 73,5 prósentum yfir meðaltali ESB. Ísland fór í fyrra fram úr Sviss og er nú dýrasta land Evrópu. Sé leiðrétt fyrir verðlaginu, sem er eina leiðin til að bera saman hvað launin raunverulega kaupa, snýst myndin við:
Vinnustundin sem er sú dýrasta í Evrópu í evrum talið kaupir tveimur prósentum minna en meðalvinnustundin í Evrópusambandinu. Meðalmanneskjan í ESB, með færri evrur milli handanna, fær meira fyrir sínar. Í röðun einstakra ríkja fellur Ísland úr fyrsta sæti í það áttunda, niður fyrir Lúxemborg, Þýskaland, Holland, Austurríki, Frakkland, Danmörku og Svíþjóð:
Að rík lönd séu dýr lönd kemur hagfræðingum ekki á óvart. Béla Balassa og Paul Samuelson settu fram skýringu á því sambandi árið 1964 og hún hefur staðið í meira en hálfa öld. En kenningin segir líka hversu mikið launin eiga að skýra. Í gögnum ESB-ríkjanna 27 hækkar verðlag að jafnaði um tæplega hálft prósent fyrir hvert prósent sem laun eru hærri. Sé þetta samband notað til að spá fyrir um verðlag á Íslandi út frá launastiginu, sem er þó hið hæsta í öllum samanburðinum, stendur eftir að Ísland er 28 prósentum dýrara en launin skýra. Það er stærsta frávik nokkurs lands í samanburðinum, og það stækkaði milli ára: í fyrra var sama frávik 22 prósent.
Útreikningarnir að baki þessu eru raktir skref fyrir skref í rannsókn minni á verðlagi á Íslandi, þar sem öll gögn og öll forrit eru opin hverjum sem sannreyna vill.
Forsíðufréttin geymdi svo sjálf fyrirvarann sem vantaði í fyrirsögnina. Þar sagði hagfræðingurinn Yngvi Harðarson að raungengi krónunnar væri nú 19 prósentum yfir sögulegu meðaltali sínu frá 1981, og hjá Samtökum atvinnulífsins var því lýst að fyrirtækin væru „komin að þolmörkum“. Á mannamáli þýðir það: efsta sætið í evrum talið er mælt á toppi gengissveiflu. Íslendingar þekkja af reynslu hvernig slíkir toppar hafa áður endað, með gengisfalli, verðbólgu og kaupmáttarrýrnun. Launin í evrum sveiflast með krónunni; verðlagið situr eftir.
Efnahagslegur árangur Íslands er raunverulegur og hann þarf ekki að ýkja. En umræðan á heldur ekki að hvíla á tölum sem snúast við um leið og spurt er hvað þær þýða. Hæstu laun Evrópu, sem kaupa minna en meðallaun álfunnar, eru ekki vitnisburður um sérstaka meistaradeild í hagstjórn. Þau eru vitnisburður um verðlag. Í einni deild er Ísland þó ótvírætt efst í Evrópu: Ísland er dýrast.
Ritstjórnarnóta Tölur: Eurostat 2025, launakostnaður á klukkustund og verðlagsvísir einkaneyslu; Belgía birti ekki launakostnað fyrir 2025 og röðunin nær því til 26 ESB-ríkja auk Íslands. Rannsóknirnar sem vísað er til: Mat á fullyrðingu Áfram Íslands (PDF) og Ísland er dýrara en öll ríki ESB, líka að teknu tilliti til launa (PDF).