Skrif um EvrópusambandiðGauti B. EggertssonUm höfundinn
Merki: íslenski fáninn undir stækkunargleri
← Aftur í yfirlit í liðum

Almenn skrif · Yfirlit í liðum

Tólf staðreyndir um ESB

Upphaflega birt á Facebook13 mín. lestur

Yfirlitsmynd með tólf staðreyndum um ESB

Orðrétt Textinn er birtur eins og hann stóð í aðalfærslunni. Aðeins röng stafakóðun Facebook-útflutningsins hefur verið leiðrétt og heimildaslóðir gerðar smellanlegar.

„Við spyrjum bara um staðreyndir, staðreyndir, staðreyndir," sagði Ólafur Ragnar Grímsson á stofnfundi Áfram Ísland [1]. Það er góð hugmynd, og á henni hefur verið nokkur misbrestur undanfarnar vikur. Á myndinni sem fylgir þessari færslu standa tólf staðreyndir um Evrópusambandið og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Þær eru ekki valdar af handahófi. Þær byggja á viðbrögðunum við síðustu færslu, sem fékk meiri athygli en ég átti von á, þar sem ég fór yfir einfaldar staðreyndir og sá að um sumar þeirra leikur vafi, þótt auðvelt sé að staðfesta þær. Ég bið engan að trúa mér. Ég bið lesendur aðeins að trúa eigin augum. Sumt er annaðhvort rétt eða rangt. Sumir veggir eru bláir, aðrir gulir. Um svoleiðis rífumst við ekki; slíkar deilur þvæla umræðuna og halda henni frá kjarna málsins.

Allar heimildir hér að neðan má opna með einum smelli og staðfesta allar efnislegar fullyrðingar. Samt heyri ég í samtölum að um þetta sé deilt. Sé deilt um staðreyndirnar sjálfar kemst umræðan aldrei áfram. Skoðanir eigum við að hafa ólíkar, þannig á það að vera. En eins og Patrick Moynihan, öldungadeildarþingmaður frá New York, sagði: „Þér er frjálst að hafa þínar eigin skoðanir, en ekki að búa til þínar eigin staðreyndir" [2].

Hér að neðan er hver staðreynd af spjaldinu rakin og studd heimildum. Fræðilegu greinarnar á bak við stærstu tölurnar eru birtar á gautiesb.is [3][4][5].

1. Já er ekki aðild: þjóðin kýs um samninginn sjálfan.

Atkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst eingöngu um hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum, svo að fullbúinn samningur geti legið fyrir [6]. Stjórnvöld hafa heitið því að bera samninginn sjálfan undir þjóðina í annarri atkvæðagreiðslu, þar sem enn má hafna aðild [7]. Og þar með er ekki allt talið: aðild krefðist stjórnarskrárbreytingar, sem tvö þing þurfa að samþykkja með alþingiskosningum á milli, því 79. greinin mælir fyrir um þingrof þegar breyting er samþykkt [8]. Þjóðin fær því alltaf lokaorðið, hvað sem öðru líður. Þetta fyrirkomulag er hvorki íslensk sérviska né nýmæli: Norðmenn kusu tvisvar um fullbúna aðildarsamninga, 1972 og 1994, og felldu báða [9].

2. Aðlögunarferli er fyrir Austantjaldið, ekki Ísland.

Aðlögunarferlið eins og við þekkjum það, með skimun, viðmiðum og uppbyggingarstyrkjum, varð til með Kaupmannahafnarviðmiðunum 1993 og var hannað fyrir ríki Mið- og Austur-Evrópu sem byggðu upp markaðshagkerfi, stjórnsýslu og dómstóla frá grunni eftir fall kommúnismans [10]. Fyrir EES-ríki er sagan önnur: viðræður Noregs, Austurríkis, Finnlands og Svíþjóðar 1993 til 1994 tóku þrettán mánuði, því EES hafði þegar samræmt regluverkið [11]. Reynsla Íslands sannar hið sama: í viðræðunum 2010 til 2013 voru 27 kaflar af 33 opnaðir á þeim 18 mánuðum sem eiginlegar viðræður stóðu og 11 þeirra lokað til bráðabirgða, langflestum samdægurs [12][13]. Óopnuðu kaflarnir voru sex, þar á meðal sjávarútvegur og landbúnaður [12]. Formlega fór Ísland í gegnum sömu skref og önnur umsóknarríki, skimun og kafla. En innihaldið var annað: Króatíu var gert að aðlagast fyrir aðild, Íslandi ekki, og Ísland fékk eitt umsóknarríkja að semja um hvenær aðlögun færi fram [13]. Samið var strax í upphafi um að engar óafturkræfar stofnana- eða lagabreytingar yrðu gerðar fyrr en aðild lægi fyrir, og utanríkisráðherra hefur staðfest að áfram yrði unnið eftir sömu reglu [14]. Það sem eftir stendur fyrir Ísland eru samningar, ekki aðlögun.

3. Yfirráð fiskimiða má festa í frumrétt: neitunarvald.

Að óbreyttum reglum ESB héldu íslensk skip aflaheimildum sínum í staðbundnum stofnum, sem bera meginverðmæti veiðanna, enda er aflaheimildum sambandsins úthlutað eftir veiðireynslu og ekkert aðildarríki á veiðireynslu hér [15]; um deilistofna færi sem fyrr eftir samningum strandríkja. En varanlega tryggingin liggur dýpra. Aðildarsamningur nýs ríkis verður hluti af frumrétti sambandsins samkvæmt 49. og 51. gr. sáttmálans um Evrópusambandið [16]. Hvað er frumréttur? Grundvallarreglur sambandsins, nokkurs konar stjórnarskrá þess. Frumrétti verður aðeins breytt með einróma samþykki allra aðildarríkja og fullgildingu hvers þeirra, samkvæmt 48. gr. [16]. Eftir aðild væri Ísland eitt þessara ríkja. Fáist full yfirráð yfir eigin miðum fest í samningnum verður þeim aldrei breytt nema með samþykki Íslands. Við hefðum neitunarvald. Evrópudómstóllinn staðfesti þetta í LAISA-málinu: ótímabundnum ákvæðum aðildarsamninga verður aðeins breytt með sömu málsmeðferð og gildir um sáttmálana sjálfa [17]. Fordæmin standa í gildandi rétti: fiskveiðistjórnarsvæði Möltu og sérreglur um Rígaflóa frá 2003 [18], heimild Spánar og Portúgals til að ákveða sjálf heildarafla tiltekinna stofna [19], ótímabundinn norðurstuðningur Finna og Svía [20] og bókun Dana um fasteignakaup [21]. Hvort slíkt ákvæði næst fyrir Ísland ræðst í viðræðunum sjálfum. Þjóðin dæmir niðurstöðuna.

4. Um 2/3 ESB-reglna gilda í dag, án atkvæðis Íslands.

Í gegnum EES tekur Ísland nú þegar upp meginhluta löggjafar ESB um innri markaðinn. Norska úttektin frá 2012 áætlar að Noregur hafi tekið upp um þrjá fjórðu af regluverki sambandsins gegnum alla samninga sína [22]; úttekt Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands mat sambærilegt hlutfall Íslands í námunda við tvo þriðju, og í rýnivinnu viðræðnanna var staðfest að Ísland hefði þegar innleitt um tvo þriðju [13]. Þessar reglur víkja ekki fyrir öðrum íslenskum lögum: með bókun 35 við EES-samninginn skuldbatt Ísland sig strax árið 1993 til að láta réttilega innleiddar EES-reglur ganga framar öðrum almennum lagaákvæðum [23]. Spurningin er því ekki hvort reglur að utan gildi á Íslandi, það hafa þær gert í rúm þrjátíu ár, heldur hvort við höfum atkvæði um þær. Fjölþjóðlegt dóms- og eftirlitsvald um þessar reglur fylgdi EES strax 1993, EFTA-dómstóllinn og Eftirlitsstofnun EFTA; við aðild kæmi Evrópudómstóllinn í þeirra stað, með bindandi lögsögu þar sem álit EFTA-dómstólsins eru ráðgefandi. Nýmælið væri breytt hlutverk dómstóls, ekki fyrsta framsalið.

5. Aldrei ábyrgð á skuldum eða lífeyri annarra ríkja: sáttmálabann.

Íslendingar borga aldrei skuldir annarra þjóða nema þeir samþykki það sjálfir, og raunar allar hinar þjóðirnar 27 líka, samhljóða. Í 125. gr. sáttmálans, sem er frumréttur og verður ekki breytt nema öll ríkin samþykki, er það hreinlega bannað berum orðum: hvorki sambandið né aðildarríki mega taka á sig skuldbindingar ríkisstjórna, sveitarfélaga eða annarra opinberra aðila annars ríkis, og undir það falla ríkisskuldir og opinberar lífeyrisskuldbindingar jafnt [24]. Skýrara verður það ekki. Þeir sem nefna Grikkland ættu að skoða formið: neyðarlánin 2010 til 2012 voru einmitt smíðuð þannig að þau brytu ekki í bága við 125. gr. Þau voru skilyrt lán, og síðar ESM, sérstakur milliríkjasamningur evruríkja sem hvert ríki fullgildir sjálft. Evrópudómstóllinn staðfesti í Pringle-málinu að fyrirkomulagið stæðist 125. gr., af því að um lán er að ræða, ekki yfirtöku skulda [25].

6. Engin herskylda: íslenskt neitunarvald.

Herskylda er ekki á valdsviði Evrópusambandsins: þjóðaröryggi er alfarið á ábyrgð hvers aðildarríkis samkvæmt 4. gr. sáttmálans, og skipan varnarmála hvers ríkis er þess eigin [26]. Tvöfaldur lás er á öllu sem lengra gengi: ákvörðun um sameiginlegar varnir krefðist einróma samþykkis í leiðtogaráðinu og að auki samþykkis hvers ríkis samkvæmt eigin stjórnskipunarreglum, og allar meiriháttar ákvarðanir í öryggis- og varnarmálum eru teknar einróma [26]. Til heildarmyndar: í 42. gr. 7. mgr. er gagnkvæm aðstoðarskylda ríkjanna ef á eitt þeirra er ráðist, varnarskuldbinding en ekki herskylda, og með fyrirvara ákvæðisins sjálfs um sérstöðu einstakra ríkja í öryggis- og varnarmálum [26]. Og í fyrri viðræðunum var þegar samið, í kafla 31 sem var opnaður og lokað samdægurs, um sameiginlega yfirlýsingu í aðildarsamningi þar sem herleysi Íslands er áréttað og tekið fram að herskylda yrði ekki tekin upp [13]. Íslensk ungmenni verða aldrei send í herþjónustu vegna ESB-aðildar: þar héldi Ísland sjálft um lykilinn.

7. Fjárlög ESB 1%, Ísland 47%: neitunarvald á skatta.

Fjárlög Evrópusambandsins árið 2023 voru 165 milljarðar evra, rétt innan við eitt prósent af samanlögðum þjóðartekjum aðildarríkjanna [27]. Til samanburðar ver hið opinbera á Íslandi um 47 prósentum af landsframleiðslu, tekjur 43,3 prósent að viðbættum 3,7 prósenta halla árið 2024 [28]. Báknið er sem sagt í aðildarríkjunum sjálfum, ekki í Brussel. Og stækkað verður það ekki bakdyramegin: ný skattheimta sem binda myndi Ísland, nýir eigin tekjustofnar sambandsins og nýr sjö ára fjárhagsrammi verða ekki samþykkt án Íslands: þar hefði Ísland neitunarvald [29][30]. Árleg fjárlög innan samþykkts ramma lúta hins vegar meirihlutareglum, innan þaksins sem einróma var sett [30].

8. Áætlun: lokið 2028, 5% af Hörpu, 0,04% af landsframleiðslu.

Kostnaðarmat utanríkisráðuneytisins frá 17. apríl 2026 gerir ráð fyrir að viðræður standi frá 1. september 2026 til ársloka 2028 og kosti 1.895 milljónir króna alls, þar af 600 milljónir í þýðingar á 30 til 50 þúsund blaðsíðum [31]. Tímasetningin er forsenda matsins fremur en loforð um verklok. Kostnaðurinn er um 0,04 prósent af landsframleiðslu eins árs, eða 0,016 til 0,018 prósent á ári. Til samanburðar var byggingarkostnaður Hörpu 20,9 milljarðar á verðlagi í mars 2015 [32], sem framreiknað með byggingarvísitölu Hagstofunnar er um 35 til 36 milljarðar í dag [33]: allt viðræðuferlið kostar um 5 prósent af einni Hörpu. Ákvörðunin sjálf varðar ekki aðeins þau sem nú lifa heldur framtíð íslenskrar þjóðar og menningar. Verðmiðinn á að fá að taka hana upplýst er fimm prósent af einni Hörpu.

9. Evra möguleg 3-4 árum eftir aðild: vextir lækka fyrr.

Fimm ríki hafa tekið upp evru innan fjögurra ára frá inngöngu í ESB: Austurríki og Finnland á fjórum árum, 1995 til 1999, Slóvenía á þremur, 2004 til 2007, og Kýpur og Malta á fjórum, 2004 til 2008 [34][35]. Tímalengdin fyrir Ísland réðist af gengissamstarfinu ERM II og samleitniskilyrðunum [36][37]. En fyrir budduna skiptir hitt meira máli: vaxtalækkunin bíður ekki evrunnar. Samleitniskilyrðin krefjast þess beinlínis að langtímavextir séu fallnir að evrópskum vöxtum áður en evra er tekin upp [36], og þannig gerðist það í Finnlandi: langtímavextir fóru úr 8,8 prósentum inngönguárið 1995 í 4,8 prósent 1998, og stóðu í 4,7 þegar evran kom 1999 [38]. Öll lækkunin, fjögur prósentustig, kom á biðárunum. Skilyrðið mælir langtímavexti ríkisskuldabréfa; íbúðalánavextir fylgja þeim eftir með sínum kjörum, eins og næsti liður sýnir. Markaðir verðleggja vexti fram í tímann. Um leið og stefna stjórnvalda verður trúverðug, með evruna sem akkeri, breytist verðlagningin hratt.

10. Raunvextir nýrra lána: hér 4,5-5,5%, evrusvæði 0,8%.

Raunvextir nýrra íslenskra húsnæðislána hafa verið á bilinu 4,5 til 5,5 prósent á sama tíma og sambærilegir raunvextir á evrusvæðinu eru um 0,8 prósent [3]. Í krónum talið þýðir bilið að fjölskylda með nýtt 60 milljóna króna lán greiddi 220 þúsund á mánuði á evrukjörum í stað 333 þúsunda, og eignaðist strax við fyrstu greiðslu um 75 þúsund krónum meira í húsinu en á íslenskum kjörum, þótt hún borgaði minna [3]. Sé vaxtamuninum beitt á allan skuldastofn heimilanna nemur hann um 108 milljörðum króna á ári, 2,2 prósentum af landsframleiðslu [3]. Útreikningarnir, gögnin og forsendurnar eru öll opin og hver sem er getur endurtekið þá. Reynslan segir sömu sögu. Við upphaf evrunnar var Þýskaland lágvaxtaland Evrópu og kjarni myntarinnar. Ríkin tuttugu og eitt sem hafa tekið hana upp, með ólíka sögu, bankakerfi, þróunarstig og kaupmátt, hafa öll farið sömu leið: vextir þeirra hafa fallið að vöxtum evrusvæðisins, að teknu tilliti til lánaforms og áhættu [3]. Hagfræðin er einföld. Hugsum okkur banka í Austurríki sem getur lánað til Rómar eða Reykjavíkur. Ef áhætta, veð, kostnaður og skilmálar eru eins er honum sama hvort lánið hann veitir, því greiðslan til baka er sú sama, enda lánað í sömu mynt; sameiginleg mynt fjarlægir gengisáhættuna en ekki annan mun. Þess vegna falla vextir hratt, fyrst að þýskum vöxtum og svo að vöxtum evrusvæðisins, um leið og markaðir sjá trúverðuga áætlun stjórnvalda.

11. Verðlag 62-73% yfir meðaltali ESB, 24-31% m.v. laun.

Samkvæmt samanburðarverðlagi Eurostat er verðlag þess sem heimilin kaupa á Íslandi 62 prósentum yfir meðaltali ESB, og 73 prósentum sé opinber þjónusta talin með [39][4]. Há laun skýra aðeins hluta: eftir stendur 24 til 31 prósents álag umfram það sem launin segja til um, stærsta frávik nokkurs lands í samanburðinum [4]. Reynsla Finnlands og Svíþjóðar bendir til að slíkt álag hjaðni verulega eftir inngöngu [4]. Mögulegar skýringar eru fákeppni, tollar, flutningskostnaður, framleiðni og gengisstaða, og greiningin sundurliðar ekki framlag hvers þáttar [4]. En eitt er víst: EES færir okkur hvorki tollabandalag né sömu mynt, og það er einmitt bilið sem innri markaðurinn, samkeppnin og gjaldmiðillinn vinna á.

12. Aðild kostar 10-15 milljarða á ári en sparar 108.

Hvað kostaði svo aðildin sjálf, þegar viðræðum lýkur? Besta viðmiðið er reynsla frændþjóða okkar, og á henni byggja stjórnvöld matið. Finnland, ríkt norðurland sem gekk inn 1995, greiðir nettó um 0,2 til 0,3 prósent af landsframleiðslu til sambandsins, og Svíþjóð er nettógreiðandi á svipuðum slóðum [27][31]. Utanríkisráðuneytið yfirfærði finnsku reynsluna á Ísland: brúttóframlag yrði um 40 til 50 milljarðar á ári, en á móti falla niður greiðslurnar sem við borgum í dag vegna EES, og nettóframlagið yrði um 10 til 15 milljarðar á ári [31][40]. Það er um hálft prósent af útgjöldum hins opinbera. Andstæðingar aðildar telja matið of lágt og nefna allt að 23 til 44 milljarða [40]; um þær forsendur má deila og verður gert. En kvarðinn blasir við hvor talan sem er lögð til grundvallar: vaxtamunurinn einn kostar íslensk heimili um 108 milljarða á ári [3]. Jafnvel hæsta kostnaðartala andstæðinga aðildar nær ekki helmingi af vaxtareikningnum einum. Ég mun gera sjálfstæðu útreikninga sjálfur á næstunni. Ég held að það sé vantalin sú sérstaða Íslands sem er afskekkt ríki og kann því að hafa aðganga að fjármagni til samgöngumannvirkja sem mun stórlækka vaxtakostnað ríkisins. Meira um það síðar.

Ókei, súmmum þetta upp: já í ágúst er ekki aðild heldur umboð til að klára samning sem þjóðin kýs svo um sjálf. Ekkert aðlögunarferli að hætti Austantjaldsins bíður okkar, við erum þegar með um tvo þriðju regluverksins. Yfirráð fiskimiðanna má læsa í frumrétti með neitunarvaldi. Enginn borgar skuldir annarra og enginn fer í her. Viðræðuferlið kostar fimm prósent af einni Hörpu samkvæmt áætlun til 2028, og aðildin sjálf 10 til 15 milljarða á ári á meðan vaxtamunurinn einn kostar heimilin 108. Og vextirnir, stærsti reikningur íslenskra heimila, byrja að lækka um leið og leiðin verður trúverðug. Allt hér að ofan má sannreyna með einum smelli.

HEIMILDIR
[1] Áfram Ísland (2026) Upphafsfundur hreyfingarinnar, 6. júlí, ræða Ólafs Ragnars Grímssonar. Aðgengilegt á: https://www.aframisland.is/upphafsfundur/
[2] Wikiquote. Daniel Patrick Moynihan. Aðgengilegt á: https://en.wikiquote.org/wiki/Daniel_Patrick_Moynihan
[3] Eggertsson, G.B. (2026) Drög að mati á lækkun vaxtakostnaðar íslenskra heimila við upptöku evru, 19. júní. Aðgengilegt á: https://gautiesb.is/skjol/vextir-og-evra.pdf
[4] Eggertsson, G.B. (2026) Ísland er dýrara en öll ríki ESB, líka að teknu tilliti til launa, 17. ágúst. Aðgengilegt á: https://gautiesb.is/skjol/verdlag-odyrt-verdur-dyrast.pdf
[5] Eggertsson, G.B. (2026) Ísland er í efstu deild Evrópu ásamt fremstu ríkjum ESB, ágúst. Aðgengilegt á: https://gautiesb.is/skjol/mat-a-fullyrdingu-afram-islands.pdf
[6] Alþingi (2026) Þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu, þskj. 1245, 516. mál, 157. löggjafarþing. Aðgengilegt á: https://www.althingi.is/altext/157/s/1245.html
[7] Alþingi (2026) Nefndarálit meiri hluta utanríkismálanefndar, þskj. 1183, 516. mál, 157. löggjafarþing. Aðgengilegt á: https://www.althingi.is/altext/157/s/1183.html
[8] Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 79. gr. Aðgengilegt á: https://www.althingi.is/lagas/nuna/1944033.html
[9] Norwegian Ministry of Foreign Affairs / Norway.no. Historical overview: Norway and the EU. Aðgengilegt á: https://www.norway.no/en/missions/eu/areas-of-cooperation/historical-overview/
[10] Wikipedia (2026) Copenhagen criteria. Aðgengilegt á: https://en.wikipedia.org/wiki/Copenhagen_criteria
[11] Evrópuþingið, rannsóknaþjónusta EPRS (2015) The 1995 enlargement of the European Union: The accession of Finland and Sweden, PE 563.509. Aðgengilegt á: https://historicalarchives.europarl.europa.eu/files/live/sites/historicalarchive/files/03_PUBLICATIONS/02_In-the-past/01_Documents/the_1995_enlargement_en.pdf
[12] Utanríkisráðuneytið (2014) Skýrsla utanríkisráðherra um aðildarviðræður við Evrópusambandið, þskj. 610, 143. löggjafarþing. Aðgengilegt á: https://www.althingi.is/altext/pdf/143/s/0610.pdf
[13] Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands (2014) Úttekt á stöðu aðildarviðræðna Íslands við ESB. Aðgengilegt á: https://ams.hi.is/documents/32/Uttekt-AMS-um-adildarvidraedur-Islands-vid-ESB.pdf
[14] Alþingi (2026) Svar utanríkisráðherra um aðlögun regluverks vegna aðildarviðræðna, þskj. 1172, 157. löggjafarþing. Aðgengilegt á: https://www.althingi.is/altext/157/s/1172.html
[15] Reglugerð (ESB) nr. 1380/2013 um sameiginlegu fiskveiðistefnuna, 16. gr. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX%3A32013R1380
[16] European Union (2016) Consolidated version of the Treaty on European Union, 48., 49. og 51. gr. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX%3A12016M%2FTXT
[17] Evrópudómstóllinn (1988) Sameinuð mál 31/86 og 35/86, LAISA o.fl. gegn ráðinu. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX:61986CJ0031
[18] Evrópusambandið (2003) Aðildarlögin 2003, 21. gr. og III. viðauki. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX:12003T/TXT
[19] Ráð Evrópusambandsins (2025) Reglugerð (ESB) 2025/202, 6. gr. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/HTML/?uri=OJ:L_202500202
[20] Evrópusambandið (1994) Aðildarlögin 1994, 142. gr. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/HTML/?uri=CELEX:11994N142
[21] Evrópusambandið (2016) Bókun nr. 32 við sáttmálana. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX:12016E/PRO/32
[22] Utenriksdepartementet (2012) NOU 2012:2 Utenfor og innenfor: Norges avtaler med EU. Aðgengilegt á: https://www.regjeringen.no/no/dokumenter/nou-2012-2/id669368/
[23] Lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, ásamt bókun 35. Aðgengilegt á: https://www.althingi.is/lagas/nuna/1993002.html
[24] European Union (2016) TFEU, 125. gr. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX%3A12016E%2FTXT
[25] Evrópudómstóllinn (2012) Mál C-370/12, Pringle gegn Írlandi. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX%3A62012CJ0370
[26] European Union (2016) TEU, 4. gr. 2. mgr. og 42. gr. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX%3A12016M%2FTXT
[27] Deutsche Bundesbank (2024) EU budget and NextGenerationEU: member states' financial relationships in 2023. Aðgengilegt á: https://publikationen.bundesbank.de/publikationen-en/reports-studies/monthly-reports/monthly-report-september-2024-939206?article=eu-budget-and-nextgenerationeu-off-budget-entity-member-states-financial-relationships-in-2023-940582
[28] Hagstofa Íslands (2025) Fjármál hins opinbera 2024, endurskoðun. Aðgengilegt á: https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/fjarmal-hins-opinbera/fjarmal-hins-opinbera-2024-endurskodun/
[29] European Union (2016) TFEU, 113. gr. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX%3A12016E%2FTXT
[30] European Union (2016) TFEU, 311., 312. og 314. gr. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX%3A12016E%2FTXT
[31] Utanríkisráðuneytið (2026) Minnisblað um áætlaðan kostnað við aðildarviðræður, erindi til utanríkismálanefndar, 17. apríl. Aðgengilegt á: https://www.althingi.is/altext/erindi/157/157-2502.pdf
[32] Alþingi (2020) Svar um byggingarkostnað Hörpu, þskj. 1717, 150. löggjafarþing. Aðgengilegt á: https://www.althingi.is/altext/150/s/1717.html
[33] Hagstofa Íslands. Byggingarvísitala. Aðgengilegt á: https://hagstofa.is/talnaefni/efnahagur/verdlag/byggingarvisitala/
[34] Wikipedia (2026) Enlargement of the eurozone. Aðgengilegt á: https://en.wikipedia.org/wiki/Enlargement_of_the_eurozone
[35] Seðlabanki Evrópu. The euro: aðildarríki og upptökuár. Aðgengilegt á: https://www.ecb.europa.eu/euro/intro/html/index.en.html
[36] European Union (2016) TFEU, 140. gr., og bókun nr. 13 um samleitniskilyrðin. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX%3A12016E%2FTXT
[37] Framkvæmdastjórn ESB. Convergence criteria for joining the euro area. Aðgengilegt á: https://economy-finance.ec.europa.eu/euro/enlargement-euro-area/convergence-criteria-joining_en
[38] OECD / FRED (2026) Long-term interest rates: Finland. Aðgengilegt á: https://fred.stlouisfed.org/series/IRLTLT01FIM156N
[39] Eurostat (2026) Comparative price levels of consumer goods and services. Aðgengilegt á: https://ec.europa.eu/eurostat/statistics-explained/index.php?title=Comparative_price_levels_of_consumer_goods_and_services
[40] Samtök skattgreiðenda (2026) Samtök skattgreiðenda leita til ÖSE vegna vanmats stjórnvalda á kostnaði við ESB-aðild, 14. ágúst. Aðgengilegt á: https://www.skattgreidendur.is/samtok-skattgreidenda-leita-til-ose-vegna-vanmats-stjornvalda-a-kostnadi-vid-esb-adild/

Deila Facebook X WhatsApp
Forsíða Almenn skrif Fræðileg nálgun Spurt og svarað Um höfundinn