Almenn skrif · Yfirlit í liðum
Nýtum fullveldi Íslands
Orðrétt Textinn er birtur eins og hann stóð í aðalfærslunni. Aðeins röng stafakóðun Facebook-útflutningsins hefur verið leiðrétt og heimildaslóðir gerðar smellanlegar.
„Ísland yrði 0,1% af ESB og hefði þar nánast ekkert vægi.“
Þetta heyrist oft. Íbúatalan er rétt. Niðurstaðan er röng.
Í dag tökum við upp stóran hluta þeirra reglna ESB sem falla undir EES-samninginn. Ísland getur haft áhrif á undirbúning þeirra, en þegar ESB tekur sjálfa ákvörðunina höfum við ekkert atkvæði í ráðherraráðinu og enga þingmenn á Evrópuþinginu [1].
Það er fullveldi sem liggur ónotað.
Íbúahlutfall er ekki mælikvarði á pólitískt vald ríkis innan ESB. Stofnanir sambandsins eru beinlínis byggðar þannig upp að vald ríkja ráðist ekki eingöngu af mannfjölda.
Hvað fengi Ísland í raun? Hér eru níu atriði.
1. ATKVÆÐISVALD Í RÁÐHERRARÁÐINU
Ísland fengi ráðherra í ráðherraráðinu í hverjum málaflokki og tæki þar þátt í lagasetningu ESB ásamt öðrum aðildarríkjum [2].
Þegar aukinn meirihluti gildir þarf að uppfylla tvö skilyrði samtímis: að minnsta kosti 55% aðildarríkjanna þurfa að samþykkja málið og þau þurfa jafnframt að fara með að minnsta kosti 65% íbúa sambandsins [3].
Þetta eru tveir aðskildir ásar.
Á íbúaásnum væri Ísland vissulega um 0,1%.
En á ríkjaásnum væri Ísland eitt af 28 ríkjum, nákvæmlega eins og Þýskaland væri eitt af 28 ríkjum.
Talan 0,1% lýsir því aðeins öðrum ásnum af tveimur í einni tegund atkvæðagreiðslu í einni stofnun ESB.
2. ÍSLAND GÆTI ORÐIÐ HLUTI AF STÖÐVUNARMINNIHLUTA
Reglurnar um aukinn meirihluta veita litlum ríkjum annað mikilvægt vægi. Til að mynda stöðvunarminnihluta í ráðherraráðinu þurfa að minnsta kosti fjögur ríki að standa saman [3].
Tökum dæmi. Þýskaland, Frakkland og Ítalía fara samanlagt með um 47% íbúa sambandsins [10], langt yfir þeim 35% sem þarf til að stöðva mál á íbúaásnum. Samt geta þessi þrjú ríki ekki stöðvað neitt ein. Þau þurfa fjórða ríkið.
Ísland gæti verið þetta fjórða ríki.
3. FULLT NEITUNARVALD Í VIÐKVÆMUM MÁLUM
Í þeim málum þar sem sáttmálar ESB krefjast einróma samþykkis hverfur íbúamunurinn alveg. Þar hefur Ísland sama neitunarvald og Þýskaland, Frakkland eða Ítalía: ef Ísland samþykkir ekki ákvörðunina verður hún ekki tekin [4].
Einróma samþykki gildir meðal annars um:
- samræmingu óbeinna skatta,
- mikilvæg svið beinna skatta,
- tekjustofna ESB,
- langtímafjárhagsramma sambandsins,
- inngöngu nýrra aðildarríkja,
- breytingar á stofnsáttmálum ESB,
- meginstefnu í sameiginlegri utanríkis- og öryggisstefnu, þar með talið sameiginlegri öryggis- og varnarmálastefnu,
- tiltekin umhverfis- og orkumál, þar á meðal val hvers ríkis á orkugjöfum og uppbyggingu eigin orkuframboðs, landnotkun og stjórn vatnsauðlinda,
- tiltekin almannatrygginga- og félagsverndarmál,
- tiltekin fjölskylduréttarmál yfir landamæri,
- tiltekna lögreglusamvinnu og dóms- og innanríkismál,
- veitingu nýrra réttinda sem fylgja ríkisborgararétti ESB [4][5].
Breytingar á stofnsáttmálunum þurfa auk þess almennt fullgildingu allra aðildarríkja samkvæmt stjórnskipunarreglum hvers ríkis [6].
Og þessu neitunarvaldi verður ekki breytt nema með samþykki Íslands. Sáttmálarnir leyfa að einstök mál séu færð úr einróma samþykki yfir í aukinn meirihluta, en sú ákvörðun krefst sjálf einróma samþykkis, og samkvæmt almenna ákvæðinu getur hvert þjóðþing aðildarríkis stöðvað hana innan sex mánaða [6].
Þegar einróma samþykki gildir er vægi Íslands ekki 0,1%. Ísland hefur neitunarvald.
4. AÐ MINNSTA KOSTI SEX ÍSLENSKIR ÞINGMENN
Ísland fengi að lágmarki sex þingmenn á Evrópuþinginu. Það lágmark er tryggt í stofnsáttmála ESB [7].
Þýskaland, með um 83,5 milljónir íbúa, hefur 96 þingmenn, sem er hámarkið samkvæmt sáttmálanum [7][8][10].
Miðað við núverandi mannfjölda væru því um 66 þúsund íbúar á bak við hvern íslenskan þingmann, en um 870 þúsund íbúar á bak við hvern þýskan þingmann [8][9][10].
Ísland fengi þannig um þrettán sinnum fleiri þingmenn á hvern íbúa en Þýskaland.
Þetta er ekki tilviljun. Í stofnsáttmála ESB er beinlínis kveðið á um „degressive proportionality“, hlutfallslega meira vægi smærri ríkja, þannig að þingmaður frá fjölmennu ríki skuli standa fyrir fleiri íbúum en þingmaður frá fámennu ríki [7].
Þessir sex íslensku þingmenn væru ekki áhorfendur. Evrópuþingið setur löggjöf ásamt ráðherraráðinu, fer með fjárveitingarvald og gegnir lykilhlutverki við val og eftirlit framkvæmdastjórnar ESB [7].
5. FORSÆTISRÁÐHERRA Í LEIÐTOGARÁÐINU
Forsætisráðherra Íslands fengi sæti í leiðtogaráði Evrópusambandsins ásamt þjóðarleiðtogum allra annarra aðildarríkja [11].
Leiðtogaráðið ákveður almenna pólitíska stefnu og forgangsmál sambandsins og tekur á stórum og viðkvæmum málum sem ekki hefur tekist að leysa á lægri stigum [11].
Og leiðtogaráðið tekur ákvarðanir sínar að meginreglu með samstöðu allra, án atkvæðagreiðslu, nema sáttmálarnir kveði á um annað [11]. Niðurstöður þess þurfa því stuðning allra leiðtoganna, líka forsætisráðherra Íslands.
Forsætisráðherra Íslands sæti þar við sama borð og kanslari Þýskalands, forseti Frakklands og aðrir þjóðarleiðtogar.
6. ÍSLENSKUR FRAMKVÆMDASTJÓRI
Samkvæmt núverandi fyrirkomulagi hefði Ísland einn framkvæmdastjóra í framkvæmdastjórn ESB, eins og Þýskaland, Frakkland og hvert annað aðildarríki [12].
Framkvæmdastjórnin gegnir lykilhlutverki í stjórnkerfi ESB, þar á meðal með frumkvæði að nýrri löggjöf, framkvæmd sameiginlegra reglna og eftirliti með því að sáttmálar og löggjöf sambandsins séu virt.
Rétt er að taka fram að framkvæmdastjórar eru sjálfstæðir í störfum sínum og taka ekki við fyrirmælum frá ríkisstjórnum [12]. En hvert aðildarríki leggur til einn, og framkvæmdastjórnin er þannig skipuð fólki frá öllum aðildarríkjum. Þekking á íslenskum aðstæðum, á sjávarútvegi og orkumálum, væri því til staðar í þeirri stofnun sem hefur frumkvæði að löggjöf sambandsins.
Íbúafjöldi Þýskalands veitir Þjóðverjum ekki fleiri framkvæmdastjóra en smáríki fá.
7. ÍSLENSKUR DÓMARI VIÐ EVRÓPUDÓMSTÓLINN
Við Evrópudómstólinn situr einn dómari frá hverju aðildarríki [13].
Ísland fengi því einn dómara, rétt eins og Þýskaland og Frakkland.
Dómararnir eru sjálfstæðir og sitja ekki sem fulltrúar ríkja sinna [13], en dómstóllinn er skipaður fólki frá öllum aðildarríkjum og íslenskur dómari þekkir íslenskar aðstæður.
Dómstóllinn túlkar löggjöf ESB og sker úr um ágreining um beitingu hennar. Ísland væri því ekki aðeins aðili að reglunum heldur ætti aðkomu að þeirri stofnun sem tryggir samræmda túlkun þeirra.
8. ÍSLAND FENGI FORMENNSKU Í RÁÐHERRARÁÐINU
Aðildarríkin skiptast á að fara með formennsku í ráðherraráði ESB í sex mánuði í senn [14].
Þegar röðin kæmi að Íslandi myndi Ísland stýra fundum ráðsins í öllum málaflokkum nema utanríkismálum, þar sem utanríkismálastjóri ESB fer með fundarstjórn [14]. Ísland myndi skipuleggja starf ráðsins, leiða samningaviðræður og vinna að málamiðlunum milli aðildarríkja og gagnvart öðrum stofnunum ESB.
Þar ræður ekki 0,1% íbúahlutfallið. Formennskan gengur milli aðildarríkjanna.
9. OG MEÐ EVRUNNI: ATKVÆÐI UM PENINGASTEFNU EVRUSVÆÐISINS
Þetta atriði fylgir ekki ESB-aðild einni og sér heldur kæmi til ef og þegar Ísland tæki upp evru.
Þá yrði seðlabankastjóri Íslands fullgildur aðili að bankaráði Seðlabanka Evrópu, ECB, ásamt seðlabankastjórum annarra evruríkja og framkvæmdastjórn bankans [15].
Bankaráðið er æðsta ákvörðunarvald ECB í peningamálum. Þar er meðal annars ákveðin peningastefna evrusvæðisins og stýrivextir [15].
Hér er rétt að hafa reglurnar á hreinu. Evruríkin eru nú 21 [16]. Vegna fjölda þeirra skiptast seðlabankastjórar á atkvæðisrétti eftir snúningskerfi, og ríkjunum er raðað í hópa eftir stærð hagkerfis og fjármálakerfis, ekki eftir mannfjölda [16]. Seðlabankastjórar fimm stærstu hagkerfanna deila fjórum atkvæðum og hafa því atkvæði fjóra mánuði af hverjum fimm. Þegar evruríkin yrðu 22 tæki þriggja hópa kerfi við, þar sem sex seðlabankastjórar minnstu hagkerfanna deildu þremur atkvæðum [17]. Seðlabankastjóri Íslands hefði því atkvæði um það bil annan hvern mánuð.
Tvennt vegur þó þyngra en talning mánaða. Hvert atkvæði vegur jafnt: þann mánuð sem seðlabankastjóri Íslands hefur atkvæðisrétt gildir atkvæði hans jafnt og atkvæði Þýskalands, hvað sem líður mannfjölda [16]. Og bankaráðið tekur ákvarðanir sínar að jafnaði með samstöðu, án þess að til formlegrar atkvæðagreiðslu komi; allir seðlabankastjórarnir sitja alla fundi, fá öll gögn og taka þátt í umræðunni, hvort sem þeir hafa atkvæði þann mánuðinn eða ekki. Seðlabanki Evrópu segir sjálfur að rétturinn til að færa fram rök í umræðunni kunni að vega jafnþungt og formlegur atkvæðisréttur [16][18].
Ísland færi þannig úr því að hafa ekkert formlegt aðkomuvald að peningastefnu evrusvæðisins yfir í að eiga atkvæði um hana og rödd við ákvörðun hennar.
Hvað Segir 0,1% Okkur Þá Í Raun?
Að íbúar Íslands væru um 0,1% af íbúum Evrópusambandsins.
Ekki mikið meira en það.
Talan segir ekki að pólitískt vald Íslands væri 0,1%.
Hún segir ekkert um að Ísland væri eitt af 28 ríkjum á ríkjaásnum í ráðherraráðinu.
Hún segir ekkert um að stöðvunarminnihluti þurfi að minnsta kosti fjögur ríki.
Hún segir ekkert um fullt neitunarvald Íslands þar sem einróma samþykki gildir, neitunarvald sem ekki verður afnumið án samþykkis Íslands.
Hún segir ekkert um að Ísland fengi að lágmarki sex þingmenn og þar með um þrettán sinnum fleiri þingmenn á hvern íbúa en Þýskaland.
Hún segir ekkert um sæti forsætisráðherra Íslands í leiðtogaráðinu, þar sem niðurstöður þurfa stuðning allra.
Hún segir ekkert um íslenskan framkvæmdastjóra.
Hún segir ekkert um íslenskan dómara.
Hún segir ekkert um formennsku Íslands í ráðherraráðinu.
Og ef þjóðin síðar ákvæði að taka upp evru segir hún ekkert um atkvæði seðlabankastjóra Íslands í bankaráði ECB.
Stofnanir ESB eru einmitt byggðar þannig upp að smáríki fá mun meira pólitískt vægi en íbúafjöldi þeirra einn og sér gæfi til kynna.
Í dag tökum við upp EES-reglur eftir að þær hafa verið samþykktar innan stofnana ESB, án þess að hafa þar atkvæði [1].
Með aðild færumst við inn fyrir dyrnar.
Að kjósa já er því ekki að gefa afslátt af fullveldi Íslands. Það er að nýta það.
Við erum ekki að setja traust okkar á Brussel. Við erum að setja traustið á okkur sjálf: að við Íslendingar séum fullgild þjóð meðal þjóða, fær um að semja um eins góðan samning og mögulegt er.
Og þetta er lykilatriðið: Já í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu er ekki já við aðild. Það er já við því að ljúka samningaviðræðum og sjá hvaða samning Ísland getur fengið.
Síðan kemur samningurinn heim.
Þjóðin metur hann. Og þjóðin ákveður.
Heimildir
[1] EFTA (e.d.). Decision shaping. Fríverslunarsamtök Evrópu. EES/EFTA-ríkin taka þátt í undirbúningi EES-tengdrar löggjafar en hafa hvorki atkvæðisrétt né ákvörðunarvald þegar ESB samþykkir löggjöf. Aðgengilegt á: https://www.efta.int/eea-relations-eu/decision-shaping (sótt 22. ágúst 2026).
[2] Sáttmálinn um Evrópusambandið (TEU), 16. gr., sjá [5]; Ráðherraráð ESB (e.d.). The European Council and the Council of the European Union: why two „Councils“? What is the difference? Aðgengilegt á: https://www.consilium.europa.eu/en/european-council-and-council-of-the-eu/ (sótt 22. ágúst 2026).
[3] Ráðherraráð ESB (e.d.). Qualified majority. Aukinn meirihluti krefst 55% ríkja og 65% íbúa; stöðvunarminnihluti þarf að innihalda að minnsta kosti fjögur ríki. Aðgengilegt á: https://www.consilium.europa.eu/en/council-eu/how-does-the-council-vote/qualified-majority/ (sótt 22. ágúst 2026).
[4] Ráðherraráð ESB (e.d.). Unanimity. Yfirlit yfir mál þar sem einróma samþykki ríkja er áskilið. Aðgengilegt á: https://www.consilium.europa.eu/en/council-eu/how-does-the-council-vote/unanimity/ (sótt 22. ágúst 2026).
[5] Evrópusambandið (2016). Consolidated versions of the Treaty on European Union and the Treaty on the Functioning of the European Union. Stjórnartíðindi ESB C 202, 7. júní 2016. Sáttmálinn um starfshætti Evrópusambandsins (TFEU), m.a. 113., 115., 153., 192., 194., 311. og 312. gr.; Sáttmálinn um Evrópusambandið (TEU), m.a. 24., 31., 42., 48. og 49. gr. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/HTML/?uri=CELEX:12016ME/TXT (sótt 22. ágúst 2026).
[6] Sáttmálinn um Evrópusambandið, 48. gr., sjá [5], um breytingar á stofnsáttmálum, fullgildingu aðildarríkjanna og almenna „passerelle“-ákvæðið í 7. mgr.: leiðtogaráðið þarf einróma samþykki til að heimila aukinn meirihluta í máli sem sáttmálarnir áskilja einróma samþykki um, og hvert þjóðþing getur stöðvað slíka ákvörðun innan sex mánaða. Sjá einnig EUR-Lex (e.d.). Unanimity. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=LEGISSUM%3Aunanimity (sótt 22. ágúst 2026).
[7] Sáttmálinn um Evrópusambandið, 14. gr., sjá [5]. Evrópuþingið skal skipað samkvæmt „degressive proportionality“, með að lágmarki sex og að hámarki 96 þingmenn frá hverju ríki; þingið fer með löggjafar- og fjárveitingarvald ásamt ráðherraráðinu og kýs forseta framkvæmdastjórnarinnar.
[8] Evrópuþingið (2024). 2024-2029 European Parliament: how many MEPs per country? Þýskaland hefur 96 af 720 sætum. Aðgengilegt á: https://www.europarl.europa.eu/topics/en/article/20180126STO94114/2024-2029-european-parliament-how-many-meps-per-country (sótt 22. ágúst 2026).
[9] Hagstofa Íslands (2026). Mannfjöldi 1. janúar 2026. Mannfjöldi á Íslandi var 394.324 þann 1. janúar 2026. Aðgengilegt á: https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/mannfjoldi/mannfjoldi-1-januar-2026/ (sótt 22. ágúst 2026).
[10] Eurostat (2026). EU population continued to grow in 2025. Fréttatilkynning 10. júlí 2026: íbúar ESB 452,0 milljónir 1. janúar 2026, Þýskaland 83,5 milljónir; Þýskaland, Frakkland og Ítalía samanlagt um 47% íbúa sambandsins. Aðgengilegt á: https://ec.europa.eu/eurostat/web/products-eurostat-news/w/ddn-20260710-3 (sótt 22. ágúst 2026). Sjá einnig Eurostat (2026). Population and population change statistics. Aðgengilegt á: https://ec.europa.eu/eurostat/statistics-explained/index.php?title=Population_and_population_change_statistics (sótt 22. ágúst 2026).
[11] Sáttmálinn um Evrópusambandið, 15. gr., sjá [5] (4. mgr.: leiðtogaráðið tekur ákvarðanir með samstöðu nema sáttmálarnir kveði á um annað); Evrópusambandið (e.d.). European Council: role and powers. Aðgengilegt á: https://european-union.europa.eu/institutions-law-budget/institutions-and-bodies/search-all-eu-institutions-and-bodies/european-council_en (sótt 22. ágúst 2026).
[12] Sáttmálinn um Evrópusambandið, 17. gr., sjá [5] (3. mgr. um sjálfstæði framkvæmdastjóra; 5. og 7. mgr. um fjölda þeirra og tilnefningu); Leiðtogaráð ESB (2013). Ákvörðun leiðtogaráðsins 2013/272/ESB frá 22. maí 2013 um fjölda framkvæmdastjóra: einn frá hverju aðildarríki. Aðgengilegt á: https://eur-lex.europa.eu/eli/dec/2013/272/oj/eng (sótt 22. ágúst 2026). Leiðtogaráðið endurskoðaði ákvörðunina í júní 2019 og hélt henni óbreyttri, sjá svar framkvæmdastjórnar ESB við fyrirspurn E-002632/2023. Aðgengilegt á: https://www.europarl.europa.eu/doceo/document/E-9-2023-002632-ASW_EN.html (sótt 22. ágúst 2026).
[13] Sáttmálinn um Evrópusambandið, 19. gr., sjá [5]: Evrópudómstóllinn er skipaður einum dómara frá hverju aðildarríki, og dómarar skulu valdir úr hópi þeirra sem ekki verður efast um að séu sjálfstæðir.
[14] Ráðherraráð ESB (2026). The presidency of the Council of the EU. Aðildarríkin skiptast á að fara með formennsku í sex mánuði í senn og stýra flestum fundum ráðsins; utanríkismálastjóri ESB stýrir utanríkismálaráðinu, sbr. einnig 16. gr. 9. mgr. og 18. gr. 3. mgr. TEU. Aðgengilegt á: https://www.consilium.europa.eu/en/council-eu/presidency-council-eu/ (sótt 22. ágúst 2026).
[15] Seðlabanki Evrópu (2024). Governing Council. Bankaráðið skipa framkvæmdastjórn ECB og seðlabankastjórar evruríkjanna og það mótar peningastefnu evrusvæðisins, þar á meðal stýrivexti. Aðgengilegt á: https://ecb.europa.eu/ecb/decisions/govc/html/index.en.html (sótt 22. ágúst 2026).
[16] Seðlabanki Evrópu (2026). Rotation of voting rights in the Governing Council, uppfært 1. janúar 2026. Evruríkin eru 21 frá inngöngu Búlgaríu 1. janúar 2026; seðlabankastjórum er raðað í hópa eftir stærð hagkerfis og fjármálakerfis; fimm stærstu hagkerfin deila fjórum atkvæðum og hin sextán ellefu; allir seðlabankastjórar sitja fundi og hafa málfrelsi; flestar ákvarðanir eru teknar með samstöðu. Aðgengilegt á: https://www.ecb.europa.eu/ecb-and-you/explainers/tell-me-more/html/voting-rotation.en.html (sótt 22. ágúst 2026).
[17] Seðlabanki Evrópu (2009). Rotation of voting rights in the Governing Council of the ECB. Monthly Bulletin, júlí 2009, bls. 91 til 99, tafla 2: með 22 evruríkjum deila fimm seðlabankastjórar fjórum atkvæðum (80%), ellefu átta atkvæðum (73%) og sex þremur atkvæðum (50%). Aðgengilegt á: https://www.ecb.europa.eu/pub/pdf/other/mb200907_pp91-99en.pdf (sótt 22. ágúst 2026).
[18] Seðlabanki Evrópu (2026). A new member at the table: how Bulgaria's euro adoption reshuffles the ECB. ECB Blog, 6. febrúar 2026. Bankaráðið tekur ákvarðanir sameiginlega á grundvelli samstöðu; rétturinn til að færa fram rök í umræðunni kunni að vega jafnþungt og formlegur atkvæðisréttur. Aðgengilegt á: https://www.ecb.europa.eu/press/blog/date/2026/html/ecb.blog20260206~9124ac61e7.en.html (sótt 22. ágúst 2026).