Skrif um EvrópusambandiðGauti B. EggertssonUm höfundinn
Merki: íslenski fáninn undir stækkunargleri
← Aftur í Almenn skrif

Almenn skrif

Menning, tungumál og sjálfstæði

Upphaflega birt á Facebook1 mín. lestur

Skopmynd með greininni „Menning, tungumál og sjálfstæði“

Orðrétt Textinn er birtur eins og hann stóð í aðalfærslunni. Aðeins röng stafakóðun Facebook-útflutningsins hefur verið leiðrétt.

Ég skil vel áhyggjur Íslendinga af því að við töpum því dýrmætasta sem við eigum: menningu okkar, tungumáli og sjálfstæði. Og ég veit að þetta veldur mörgum áhyggjum þegar kemur að ESB.

En við þekkjum nú nágranna okkar ágætlega. Eru Danir eitthvað minna Danir en Norðmenn eru Norðmenn vegna ESB?

Danir eru í ESB en Norðmenn ekki. Ég efast um að almenningur í Danmörku upplifi tilveru sína um sitt þjóðerni og menningu á einhvern annan hátt en Norðmenn.

Skoðun margra er sú að fyrir smáríki sé alþjóðlegt samstarf grundvallaratriði til þess einmitt að vernda sjálfstæði okkar.

Sömu áhyggjur komu auðvitað upp vegna inngöngu okkar í NATO og EES. Ég efast ekki um að báðar þær ákvarðanir — líklega tvær af umdeildustu ákvörðunum lýðveldissögunnar — hafi styrkt sjálfstæði þjóðarinnar.

Það eru bæði kostir og ókostir við aðild að ESB. Skynsamlegar rökræður geta því aðeins farið fram ef það liggur fyrir hvað aðild felur í sér. En við vitum ekki hverjir þeir eru nema með því að fara í aðildarviðræður.

Deila Facebook X WhatsApp
Forsíða Almenn skrif Fræðileg nálgun Spurt og svarað Um höfundinn